Morgunstund gefur gull í mund
24.08.2006 18:03:27 / Erna

Hallo

Villtist inná þessa síðu af Birkihlíðarsíðunni , mundi ekki password fyrir 5 aura en þetta hafðist allt saman.

Lísa og Gísli gaman að þið kíkjið reglulega við !! Bara ekki að nenna þessu samt hef ég frá svo mörgu að segja.

Yfir og út


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 21:42:35 / Erna

blogg

Ég á alveg afskaplega erfitt með að taka ákvarðanir þessa dagana. En eina hef ég þó tekið og það er að ég ætla að yfirgefa bloggheimana að sinni. Þoli ekki blog central og þegar maður er að tjá sig í skoðunum eða gestabók að þurfa að pikka inn einhvern kóða       

Svo veit ég heldur aldrei hvað ég á að skrifa þar sem mér finnst ekkert markvert gerast þessa dagana. 

 Eigið góðar stundir


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 00:12:18 / Erna

Blús

Norðurljósablúshátið er hafinn í firðinum fagra. ´Var að koma af opnunartónleikunum það var rosalega gaman, reyndar lét listamaðurinn bíða eftir sér en það var þess virði.

sjáið nánar um þetta hérna http://www.skemmtifelag.is/

Eigið góða helgi


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 16:13:46 / Erna

Afmæli

Kær vinkona og einn af fastagestum bloggsíðunar minnar á afmæli í dag .

Elsku Matta mín til hamingju með daginn. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 16:11:29 / Erna

Bolla bolla bolla

Jæja fyrsti í bolludegi runninn upp, á þessum bæ voru gerðar 2 heiðarlegar tilraunir í bollubakstur, sem gekk svona lala, en þó bollurnar væru nú ekki mikið fyrir augað og höfðu fallið , á voru þær samt bara góðar !Búnar að fara í góðan hjólatúr í Óslandið og um bæinn með viðkomu í kirkjugarðinum.  Veðrið verður eins og best er á kosið í firðinum fagra. Kanski er það afþví  að vinkona mín veðurfræðingurinn er á leiðinni til mín í kaffi !  BEst að hella á könnuna.


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 23:32:40 / Erna

Lónið mitt

Helló, allir sprækir er það ekki ?  Var að koma úr Lóninu fór að heimsækja systurnar Elísabet og Matthildi og þeirra afkomendur , þær eru að eyða skólafríinu í Araseli, frábært að hitta þær og ég fékk dýrindis pizzu hjá þeim of svo púsluðum við og töluðum út í eitt.  Takk fyrir okkur kæru systur.  Mig langar svo mikið að fara í svona bústaðaferð hver vill koma með mér ?   Ætla að fara að koma mér í bælið og rífa mig á fætur eldsnemma til að vinna, stemma af nokkra reikninga og svona skemmtileg heit.  


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 08:41:31 / Erna

Próf

Góðan daginn , góðir hálsar.  Nú er að detta á próf í Upplýsingatækni og tölfræði.  Var líka í prófi á mánudaginn sem gekk EKKI vel.  :^)    svo er nokkra daga skólafrí, en við tekur brjáluð vinnutörn.  Ekki hægt að segja að manni leiðist þessa dagana :)   Annars hef ég ekkert að segja svo ég ætla aðeins að þramma um gólf áður en prófið dettur inná skjáinn.  Eigið góða vikurest


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 00:19:25 / Erna

klukk

Ekki slapp maður við klukk-ið, fyrst ég er á annaðborð dottinn í félagslega hangsið í próflestrinum þá er best að svara klukk-inu núna

4 störf sem ég hef unnið við um ævina: 

afgreiðslustörf, -fiskvinnslu, -bókhald, ræstingu....

4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur:

Loveletter (minnir mig að hún heiti horfði mikið á hana á unglingsárum). -Flashdance, -Grease,-Bridget Jones diary.

4 staðir sem ég hef búið á:

 Hlíðartún ,- Silfurbraut, -Sandbakki,- Skólabrú

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar. 

Þar fór í verra horfi afskaplega lítið á sjónvarp þessa dagana  , horfi á Desperate houswifes  og Bráðavaktina ef ég man eftir því.  En þættir sem ég hef einhvern tíma fallið fyrir eru : Dallas, Nágrannar, Falcon crest, Sex in city.

4 síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

mbl.is,- skoli.is,- hornafjordur.is,- horn.is

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Danmörk,-Skotland,-Spánnn,- Portugal

4 matarkyns sem ég held uppá:

Matargat eins og ég á nú erfitt með að nefna þetta ,  humar,- villibráð,- Rækjubrauðterta hjá Heiði móðursystir, -mexikanskur matur

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:

sötrandi öl í ermalausum bol þar sem væri sól og sumar,-  held að það væri líka gaman að skreppa til tunglsins,- - ég væri  til í að vera í húsmæðraorlofi núna, fór ekkert síðastliðið haust eins og venja er orðin og er því farið að langa að fara !

Stóð ég mig ekki bara nokkuð vel í klukkinu.  Nú ætla ég að klukka þig lesandi góður  :lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 00:00:40 / Erna

TIL HAMINGJU ÍSLAND

Glæsilegur árangur hjá Silvíu Nótt... Lýst vel á að senda hana til Grikklands, lagið er skemmtilegt, en ég hef svosem aldrei verið mikill aðdáandi Silviu en er sko viss um að það verður bara gaman að þessu....

Nóg að gera á þessum bæ í próflestri ég er að fara í 2 lokapróf eftir helgina og Sandra er búin að vera í prófum og fer í síðasta prófiið á mánudag sem er kristinfærðipróf.  Hun er búin að standa sig ljómandi vel á þeim prófum sem hun hefur fengið einkunnir úr, svo nú vona ég bara að ég standi mig jafnvel.

Litum þó aðeins uppúr skruddunum í dag og fórum í afmæliskaffi til Thelmu Ýrar ( er þetta rétt fallbeygt ?)  Hun varð 6 ára skvísan og mamma hennar klikkaði sko ekki á hnallþórunum.    Svo var líka litið uppúr skruddunum með eurovision , bara nett kæruleysi í gangi.  8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.02.2006 22:19:20 / Erna

Það er komið sumar ?????

Ég er nú farinn að halda að það sé komið vor.  Þegar við fórum suður um síðustu helgi var áberandi hvað jörð væri orðin græn.  Maður bjóst bara næstum við að sjá bændur í heyskap undir Eyjafjöllunum !  Þeir voru allavegna ekki farnir að heyja á suðurleiðinni en kannski þegar við vorum á heimleið en við ekki séð það vegna þoku.  Í dag var svo geggjað veður í firðinum fagra.  Ég var reyndar voðalega dugleg að læra til 14 þá var pása og fórum við mæðgur í hjólaferð, skyldum reyndar hjól heimasætunnnar eftir í viðgerð.  Fórum svo í göngu með Jónu og Andreu Sól, vorfílinguirnn var svo mikill að við komum við í sjoppunni og keyptum okkur ís !  GEGGJAÐ...  


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 22:03:44 / Erna

KB banki

Ég er voðalega andlaus hvað ég á að skrifa hérna, og var að segja Önnu skólasystir að ég yrði bara að fara að skrifa um hana, en þá datt mér í hug efni sem við erum að læra um og datt inn um brefalúguna í dag....  það var hlutafjármiði yfir eign mína í Kbbanka, já maður á sko stórar eignir !  Fyrir nokkrum árum sennilega svona 6-7 árum keypti ég hlut í Búnaðarbankanum sem síðar sameinaðist Kaupþingi og úr varð KB banki.  Minnir að ég hafi spanderað um 8.000 krónum í þetta en þetta hefur sko margfaldað sig í dag, en KB banki er að skila miklum hagnaði og í stöðugri útrás.   Vá þetta er bara farið að hljóma eins og skólaverkefni !  Er einmitt búin að vera að læra um hlutabréfamarkaðinn og ég hef bara aldrei skoðað hlutafjármiðan minn eins vel og núna.  Spurning hvort maður eigi að henda fleirri 8000 köllum í eitthvað sem gæti margfaldað sig á nokkrum árum, einhverjar hugmyndir ? 


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 19:23:54 / Erna

Febrúar

Vá það er meira en mánuður síðan ég skrifaði síðast. Held bara að janúar hafi aldrei áður verið svona fljótur að líða.  Nóg að gera í vinnu og skóla.  Var á Bifröst um síðustu helgi og það var alveg ágætisferð.  Kom við í höfuðborginni og hitti hana systurdóttur mína í fyrsta sinni , hún er algjör gullmoli, hlakka mikið til að hitta hana aftur í næsta mánuði og svoldið mikið lengur en núna.  Náði einnig í útsölulok og gat aðeins straujað kortið en gerði ekkert nema góð kaup ;).  Jæja ætla að kíkja hvernig einkadótturinni gengur að skrifa um bókina " saltfiskur í strigaskóm" .  Lofa ekki bloggi á næstu dögum, né vikum !


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 20:30:35 / Erna

°h

Íþróttamaður ársins í imbanum, Lýst vel á hann og hann er greinilega að gera góða hluti hjá tjöllunum.  Hér er rok og aldrei þessu vant rigning, en ekki orðið flóðahættuástand !  Fór í góðan göngutúr í dag, sem var ansi blautur ég var gjörsamlega gegnblaut, enda kannski ekki alveg nógu vel búin því það sem á að vera vind, vatnshelt og öndunar eitthvað  og ég veit ekki hvað og hvað er nú bara ekki að virka alltaf.

Síðasti frídagur heimasætunnar og hún er sko ekki komin á fætur, tekur sig nú varla héðan af !  Horfðum á myndina "Back to future" í dag mikið var það gaman, þar er horfið 30 ár aftur í tíman , en ég hvarf 20 ár aftur í tíman , en myndin er síðan 1985. 


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.01.2006 19:34:56 / Erna

spennufall

:lol:   Einkunnir komu í gær en einhver vírus var  að þvælast í þeim því fólk var að falla í stórum stíl.  Ljótt að valda manni svona taugaáfalli þó það hafi nú fljótt komið í ljós að þetta var ekki rétt.  En réttar einkunnir komu  ekki fyrr en í dag og ég brosi nú bara í hring núna og veit um fleirri sem gera það.  Svo eru bara nokkrir dagar í næstu törn og ég hlakka nú bara smá til að byrja aftur.

Í tilefni dagsins var sko pöntuð pizza og drukkið með eðalrauðvín  ( er nefnilega ennþá að klára gamlárskvölds vínið , þar sem lítið fór fyrir drykkju þá !) 

Skál


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.01.2006 12:58:55 / Erna

spenna

Spenna í hámarki í dag. Er að bíða eftir einkunum úr lokaprófum, örugglega búin að kíkja 20 sinnum síðan ég vaknaði seint og um síðir í morgun, en ekkert komið. 

Á morgun tekur svo við grár hversdagsleikinn, vinna éta og sofa og eftir næstu helgi bætist lærdómur inní þessa rútínu .  það er nú ágætt að þetta sé að detta í rétt ról, þá hlýtur heilsan að lagast er búin að vera með kvef og hálsbólgu og þegar það var að lagast tók magakveisa við. 

tvær söngkonur eru í stofunni hjá mér núna og syngja hástöfum í singstar lag með culture club.  Þessi nýji diskur er bara snilld og maður hverfur 20 ár aftur í tíman við að hlusta á Duran Duran , Wham, og fleirri góða.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13